Category: Viðburðir

Heimafundur á laugardag

Á morgun, laugardaginn 29. mars verður heimafundur. Að þessu sinni er hann heima hjá Salvari, Lynghaga 2 og hefst kl. 20Þ30 Að vanda verður létt stemning, söngu og Guðs orð. Hvetjum alla til að koma. Þetta er einnig síðasti fundur fyrir aðalfund en hann verður haldin á Holtavegi laugardaginn 5. apríl.


28. March 2008 0

Páskafundur á Holtavegi

Á morgun, laugardaginn 22. mars, verður KSF fundur í kjallaranum á Holtavegi 28. Fundurinn verður að sjálfsögðu með páskaívafi og hugleiðingu frá formanni vorum. Páskaeggjabingó verður á sínum stað og að loknum fundi verður haldið í partý ásamt KSS. Sjáumst á Holtaveginum á morgun.


21. March 2008 0

Fundur í Grensáskirkju

Í kvöld, laugardaginn 15. mars, verður KSF fundur í Grensáskirkju kl. 20:30. Norskur kór frá Þrándheimi kemur í heimsókn, syngur og sitthvað fleira. Sjáumst í Grensáskirkju.


15. March 2008 0

Fundur á Háaleitisbraut í kvöld

Í kvöld verður loksins aftur fundur á Háaleitisbraut. Og það ekki fundur af verri endanum. Við fáum í heimsókn Lauru Scheving Thorsteinsson en hún ætlar að fjalla um það að vera kristinn í starfi. Ekki fundur sem þú vilt missa af. Hann hefst að venju kl. 20:30. Ferðalag: Í næstu viku er norskur kór að…
Read more


8. March 2008 0

varðandi árshátíð

Líkt og áður sagði verður árshátíð KSS og KSF haldin hátíðleg næsta laugardag. Hún verður í Grafarvogskirkju og mun húsið opna kl.18:30. Árshátíðinni má búast við víkingaþema og verður hún öll hin glæsilegasta. Þeir sem vilja nálgast miða á árshátíðina geta millifært á reikning KSF en reikningsnúmerið er 0101-26-40106 og kennitalan 670874-0289. Miðaverð er 3.500…
Read more


24. February 2008 0