Aðventukaffi KSF 15. desember

Aðventukaffi KSF 15. desember

7. December 2013 Fréttir 0

1467303_770138916336591_224511258_nSunnudaginn 15. desember, kl. 14-17, mun KSF standa fyrir aðventukaffi í sal SÍK, Háaleitisbraut 58-60. Allir eru hjartanlega velkomnir!

Aðgangseyrir er sem hér segir:
– Fullorðnir: 1.000 kr.
– Börn (6-12 ára): 500 kr.
– Börn (5 ára og yngri): Frítt

Einnig verður hægt að taka þátt í happdrætti þar sem vinningarnir verða ekki af verri endanum. Má sem dæmi nefna gjafabréf út að borða, umfelgunarpakki á fólksbíl, gjafabréf í keilu o.fl. Að auki verður hægt að kaupa sælgæti til að eiga yfir jólin.

Kaffisalan er nú orðin að föstum lið hjá félaginu á aðventunni. Hafa margir nýtt tækifærið til að njóta góðra veitinga og hlusta á jólatónlist. Hljómsveitin Tilviljun? verður með tónlistaratriði.

Atburðurinn er mikilvæg fjáröflun fyrir starfsemi félagsins, en allur ágóði af aðventukaffinu mun renna til starfs KSF.

Vonumst til að sjá sem flesta,

Stjórn KSF