Sameiginleg samkoma

Sameiginleg samkoma

4. April 2013 Fréttir 0

Á morgun, föstudaginn 5. apríl, verður fyrsta af þremur sameiginlegum samkomum sem haldnar verða í apríl. Samkomurnar eru haldnar í tengslum við Hátíð vonar, sem verður í haust (sjá nánar á www.hatidvonar.is).

Samkomurnar verða haldnar að Holtavegi 28, húsi KFUM&KFUK og byrja kl. 20.00!

Hátíð vonar býður okkur upp á kennslu, sem ber heitið “Kristið líf og vitnisburður”. Sú kennsla mun nýtast vel fyrir samkomuherferðina sem verður í september. Er þessari kennslu skipt niður á þessar þrjár samkomur sem verða 5., 19. og 26. apríl.

Á fyrstu samkomunni mun Dögg Harðardóttir sjá um kennslu.

Þetta er sameiginleg ungmennasamkoma Fíladelfíu, Vegarins, Íslensku Kristskirkjunnar, KSS og KSF en auðvitað eru allir velkomnir!

Sameiginlegt lofgjörðarband mun leiða í lofgjörð!

Það verður öflugt félagsstarf eftir samkomuna en á morgun mun m.a. verða boðið upp á Vesturbæjaríspartý!! (kostar 500 kr. á mann)

Hlökkum til að sjá ykkur!

—–
Hafi einhver áhuga á að sækja námskeiðið “Kristið líf og vitnisburður” en kemst ekki á þessar samkomur má sjá lista yfir aðra staði og tímasetningar sem námskeiðið verður haldið á á vefsíðunni www.hatidvonar.is.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *