Þorláksmessustund KSS og KSF
![Friðrikskapella Friðrikskapella við Vodafone Höllina](http://www.ksf.is/wp-content/uploads/2009/12/fridrikskapella-300x199.jpg)
Friðrikskapella við Vodafone Höllina
Á morgun, 23. desember, sem er Þorláksmessa, munu KSS og KSF halda sameiginlega stund í Friðrikskapellu á Hlíðarenda (hjá Valsheiminu og Vodafone höllinni).
Þessi stund mun líkt og undanfarin ár hefjast kl. 23:30 tímanlega, ekki kúl að vera seinn.
Stundin er ekki löng og er órjúfanlegur þáttur margra í að komast í jólaskap. Sr. Jón Ómar Gunnarsson, æskulýðsprestur, mun flytja okkur stutta hugvekju, jólasálmar verða sungnir og tónlistaratriði verður á staðnum. Eftir á verður boðið upp á piparkökur og eitthvað að drekka með. Endilega komið og hefjið jólahátíðina með okkur í góðra vina hópi á þessari notalegu stund.
Sjáumst sem flest 🙂