Nú er hægt að fá Orkulykil sem veitir afslátt af eldsneyti hjá Orkunni og Shell ásamt því að styrkja KSF.
Smelltu hér til að skoða meira

Framundan

2. febrúar 2012 kl. 21:00
KSF fundir | Dómkirkjan

6. febrúar 2012 kl. 12:50
Bænastundir | Kapella HÍ

7. febrúar 2012 kl. 22:00
Íþróttastarf | Valsheimilið

Upplýsingar

Kristilegt stúdentafélag - KSF
Holtavegi 28
104 Reykjavík

ksf (hjá) ksf.is
S: 588 8899

Nýjar myndir komnar inn á vefinn

img_3801Nokkrar myndir frá aðventukaffi KSF eru komnar inn á vefinn (Sjá myndir hér að ofan og svo Aðventukaffi KSF). Við þökkum öllum sem tóku þátt með einum eða öðrum hætti kærlega fyrir alla hjálpina og biðjum Guð að blessa ykkur fyrir stuðninginn. Við bendum á að enn er hægt að kaupa Jólauppskirftabók og smákökur í facebook grúppu KSF.

 

Vinningar í línuhappdrættinu koma m.a. frá Garðheimum, Eddu, Snyrtistofunni Paradís, Lýsi, Bláa lóninu, Puma, Tokyo sushi, Snyrtivöruversluninni Glæsibæ, Wilsons Pizza og Snyrtistofu Grafarvogs. Stórglæsilegir vinningar!
Ein lína kostar 500 kr og 5 línur kosta 2000 kr!
Á aðventukaffinu verður til sölu jólauppskriftabók sem samanstendur af 32 uppskriftum sem eru nauðsynlegar á hvert heimili fyrir jólin! Hvernig gerir maður uppstúf? Hvað á maður á baka sörubötna lengi? Hvernig undirbý ég kalkún fyrir steikingu? Svör við þessum spurningum og ótalmörgum öðrum er að finna í þessari bók! Bókin kostar 1500 kr og fyrir þá sem ekki komast í aðventukaffið er hægt að panta hana hér á facebook eða á ksf@ksf.is og við komum henni til þín!


Út að borða, KSS fundur og hin árlega skautaferð KSS og KSF

Á laugardaginn, 17. desember, er KSF-ingum boðið á KSS fund á Holtavegi 28 kl 20:30. Stórsveit KSS mun spila jólatónlist fyrir viðstadda og eftir fund verður farið í hina árlegu skautaferð KSS og KSF. Fyrir fundinn ætlum við að borða saman á Eldsmiðjunni á Suðurlandsbrau 12 og ætlum við að hittast þar upp úr 19:00. Fólk er velkomið að mæta á alla þessa viðburði eða hvern um sig eftir sinni hentusemi.

English version:
On Saturday, 17th December, KSF people are invited to a KSS meeting on Holtavegur 28 at 20:30. Big band KSS will play christmas songs and after the meeting we will go together to the yearly skate trip. Before the meeting, we are going to eat together at Eldsmiðjan on Suðurlandsbraut 12 but we will meet there at 19:00. People are welcome to attend all these events or just the ones they prefer.

Sund í Laugardalslauginni

Á þriðjudaginn kl 20:00 verður farið í sund í Laugardalslauginni. Hugmyndin er að slappa af í pottunum og ef vilji er til staðar að fara jafnvel í körfu, blak eða ruðning. Ekki má svo gleyma rennibrautinni sem er líka mikið stuð!!! ;) Stakt gjald í sund er 450 kr en einnig hægt að kaupa 10 miða kort og þá kostar bara 300 kr skiptið.Á þriðjudaginn kl 20:00 verður farið í sund í Laugardalslauginni. Hugmyndin er að slappa af í pottunum og ef vilji er til staðar að fara jafnvel í körfu, blak eða ruðning. Ekki má svo gleyma rennibrautinni sem er líka mikið stuð!!! ;) Stakt gjald í sund er 450 kr en einnig hægt að kaupa 10 miða kort og þá kostar bara 300 kr skiptið.

Biblíustund

KSF-fundur fimmtudaginn 8. desember kl 21:00 í Dómkirkjunni í Reykjavík. En nú aftur verður fundurinn með öðru sniði en venjulega.

Við ætlum að hittast upp á háalofti kirkjunnar og lesa saman nokkur vel valin orð úr Biblíunni. Jón Ómar ætlar að vera með okkur og leiða hópinn. Endilega gefið Guði smá stund af ykkar tíma og kíkið á okkur.

Ekki gleyma að taka Biblíuna með.

Eftir fundinn ætlum við að detta í smá kósýheit. Fá okkur kakó og piparkökur. Spila ef áhuga er til staðar. Hlökkum til að sjá sem flestaKSF-fundur fimmtudaginn 8. desember kl 21:00 í Dómkirkjunni í Reykjavík. En nú aftur verður fundurinn með öðru sniði en venjulega.

Við ætlum að hittast upp á háalofti kirkjunnar og lesa saman nokkur vel valin orð úr Biblíunni. Jón Ómar ætlar að vera með okkur og leiða hópinn. Endilega gefið Guði smá stund af ykkar tíma og kíkið á okkur.

Ekki gleyma að taka Biblíuna með.

Eftir fundinn ætlum við að detta í smá kósýheit. Fá okkur kakó og piparkökur. Spila ef áhuga er til staðar. Hlökkum til að sjá sem flesta