Blog

Undur mannslíkamans

Á morgun þann 17. mars verður KSF fundur að venju á Háaleitisbrautinni og hefst hann klukkan 20.30. Það er einn af okkar félagsmönnum hún Björg Jónsdóttir sem að mun tala um undur mannslíkamans. Ekki missa af þessu spennandi efni og tækifæri til að eiga gott samfélag. Hittumst heil.


16. March 2007 0

Árshátíð

Elsku sætu KSF-ingar nær og fjær! Senn líður að því að 3.mars líti dagsins ljós, og hvað þýðir það……..ÁRSHÁTÍÐ! Jújú, hin stórmagnaða árshátíð KSS/F 2007 verður haldin þann 3. mars næstkomandi. Hún verður haldin í Grensáskirkju og húsið opnar klukkan 18:17. Þemað er eins og áður hefur komið fram 15.öld en það þýðir samt ekki…
Read more


15. February 2007 0

Lofgjörðar og fyrirbænastund

Næst komandi laugardag, þann 10. febrúar munum við vera með lofgjörðar og fyrirbænastund á Háaleitsbrautinni kl 20:30. Í stað ræðumanns verður mikið sungið, boðið upp á fyrirbænir og opnað fyrir vitnisburði. Hvetjum alla til að mæta.


6. February 2007 0

Stúdentamót

Þá er farið að líða að stúdentamóti. Við munum leggja af stað frá Háaleitisbraut kl 17:00, stundvíslega næsta föstudag. Mæting er kl 16:30. Mikilvægt er að leggja ekki seinna af stað, svo vinsamlegast mætið tímanlega. Nokkra hluti er gott að hafa með sér: svefnpoka, kodda, lak, föt til skiptana, húfu og vettlinga…. annars erum við…
Read more


22. January 2007 5

Kynningarfundur ALFA

Nú á vormisseri mun KSF standa fyrir alfa námskeiði fyrir háskólanemendur, Alfa námskeið eru skemmtileg og fróðlegt tíu vikna námskeið um kristna trú. Þarna gefst gott tækifæri til að kynna sér kristna trú og helstu atriði hennar. Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér. Þann 17. janúar kl 18:00 í stofu 202 í Odda verður…
Read more


15. January 2007 0